Jæja ég alltaf jafn heppin, í dag var ákveðið að þrífa allt kollegie-ið hjá Ingu og Markúsi og mín átti að taka þátt í því. Það átti að byrja kl 9 en þar sem ég, Inga og Markús vorum með My name is Earl maraþon í gær vaknaði ég ekki fyrr en kl 12!!! Góður!! En það skipti víst engu máli því það ringdi og þá var ekki hægt að gera það sem átti að gera í garðinum og allir settir í þrífa inni og ekkert fyrir mig að gera :D. Inga skutlaðist svo að versla fyrir afmælið hennar Thelmu sem verður á morgun og ég að passa Tinnu. Svo fórum við að gera brauðtertur og heita rétti og bara eitthvað að vesenast og allt í einu var komið að matnum en það var sameiginleg máltíð með öllum í húsinu. Eftir matinn var svo bara afslöppun og svo byrjaði partýið en Inga er næst mesti Sing-star fan sem ég þekki (Gunga vinnur hana ;)) og það var sungið og sungið. En það eru allir barnlausir að spá í að fara í bæinn og bara til að greiða fyrir allan matinn og annað frá því að ég kom ætla ég að vera heima og sjá um börnin. Það verður gaman hjá mér í fyrramálið að klára að ganga frá öllu fyrir afmælið með þunnri Ingu :D.
En ég heyri bara í ykkur seinna,
hilsen frá Danmörku.
laugardagur, ágúst 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þannig að það er bara stemming á staðnum. Verður greinilega skellt sér í sing-star þegar við kíkjum í heimsókn! Þið Inga verðið þá að æfa ykkur úti og við Gunga og Þórdís æfum okkur hérna heima. Annars var Víðir bara álíka duglegur í barnapössun og þú um helgina. Mamma hans og frænkur helvíti ánægðar með hvað hann er orðinn duglegur í kringum börnin. Hann var bara að róla með Magnúsi jr í heillangan tíma. (ég að sjálfsögðu sú eina sem mótmælti því að hann hefði gott að æfa sig :) úps) fékk víst ekki plús í kladdann hjá Freydísi...
HAhahaha. Er það samt ekki í góða að fá ein mínus? Þú ert komin með svo marga plúsa? Annars sakna ég þín Anna mín ógó mikið og er að bíða eftir jólunum ;) Hafðu það gott babe
Skrifa ummæli