Á laugardagskvöldið var Talíbana fundur haldinn. Alla vegana samkvæmt bekkjarfélögunum.
Það var afmæli hjá Borghildi og sátum þar í einhverja tíma. Svo var skellt sér á Fredagsbarinn í Teknikum en þar þekkja þeir ekki hugtakið loftræsting!! En staðurinn var pakkaður og brjálæðislega heitt og þungt loft þannig að við ákváðum að kíkja í bæinn. Við kíktum svo á Ryan's en þar voru fleiri íslendingar að djamma. Svo villtist ég á leiðinni heim til mín, áfengi og ókunnur staður, ekki alveg að gera sig.
En nú styttist í að maður fái heimsókn, bara 25 dagar í Auði og Víði!!!
En heyri bara í ykkur seinna.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
ha?! hvað meinaru talíbanafundur?:D en allavega gaman að heyra í þér en hvað þýðir pocadot?
kv. atli
Hahaha! Vorum við systurnar sem sagt svipaðar á laugardaginn?? En ég rataði allavegana heim til mín. Þökk sé henni Gungu minni :) Hlakka til að heyra í þér úr nýja símanum. Er pakkinn annars kominn?
Já ég veit ekki hvar þú hefðir endað Auður ef ég hefði ekki verið þarna :) Ég mundi giska í rúminu hans Ömma en þér leið ansi vel á svölunum sko :P
Þegar við Inga erum að tala saman í skólanum erum við talíbanar eða eitthvað álíka. Þegar strákarnir í skólanum fréttu að við hefðum verði á íslendinga djammi skírðu þeir það talíbana fund. Pocadot er smá þvæling á polkadot.
Hey ég er búin að búa hérna í rúmar 2 vikur og það er eiginlega ekkert skrítið að ég viltist.
Pakkinn kemur örugglega í dag.
Hmm hvað er málið með Ömma????
Skrifa ummæli