miðvikudagur, september 13, 2006

Tölvan mín!!!

Loksins loksins er tölvan mín komin!!!

En nú vantar mig bara netið :(

Svo er bara einn mánuður þangað til að Auður og Víðir koma og ég get ekki beðið!!!

Nú er nóg að gera í skólanum, sat á kaffihúsi í 2 tíma í dag með nokkrum úr bekknum og teiknaði eitthvað hús, allt brjálað að gera!! :D Svo 2. október verður farið í skólaferð upp til Álaborgar að skoða einhverja léttsteypu og verður gist eina nótt. Þannig að planið er að fara allur bekkurinn saman út að borða og fara svo á djammið, það verður geggjað!! Svo var ákveðið að þjappa bekknum saman og gera eitthvað sniðugt, bara við, og það var pantað fyrir okkur í go-kart, út að borða og svo á djammið. Þeir eru svoldið hrifnir af áfengi hérna úti :D En þá fyrst fæ bekkurinn minn að sjá hvað ég er brjáluð keppnismanneskja, veit ekki hvernig það á eftir að virka.

Mamma hennar Ingu kemur um helgina og hún var beðin um að taka hákarl með sér, svo það verður íslensk stemning á mánudaginn í skólanum. Ég get ekki beðið eftir því að sjá andlitið á liðinu þegar dollan verður opnuð!!

En ætla að fara fá mér netið vonandi á morgun annars eftir helgi. Heyri bara betur í ykkur þegar netið er komið. Svo fæ ég smartsímann minn á laugardaginn en hann virkar ekki nema ég sé með netið þannig að ég læt ykkur vita.

Heyrumst.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohh... Ég hlakka líka svo mikið til!!! Sakna þín snúllan mín :) En mundu bara að láta Kim vita að ég er ekki á háum launum hjá ríka fyrirtækinu...

Nafnlaus sagði...

Hey baby.... ohh loksins kominn með tölvuna þína;o) þá geturu farið að garga gegnum netið eins og hann frændi þinn ;o) hahah bara snild þetta skype dæmi... en allavega hlakka rosa til að sjá þig;o)
Love you og miss you mikið......

Nafnlaus sagði...

Haha kannski skemmtilegra að setja nafn með... híhí ææ veist nú hvað ég er klár á tölvur;o/

Nafnlaus sagði...

And the package has left the country!! Kemur í kringum helgina ;)

Nafnlaus sagði...

And the package has left the country!! Kemur í kringum helgina ;)