þriðjudagur, október 03, 2006

Skólaferðalag

Jæja komin heim eftir erfiðasta skólaferðalag ever!! Allt á dönsku og það meira segja ölvuð danska!!
En við byrjuðum á því að mæta upp í skóla kl hálf 8 í gær morgun og hálftíma seinna byrjaði liðið að fá sér bjór. Við fórum í kynningu hjá Lega (léttsteypa) rétt hjá Árhúsum borðum hádegismat þar og brunuðum svo til Aalborg, þar sem við skoðuðum Aalborg-Portland (sement). Þar horfðum við á einhverja mynd og fórum svo um svæðið. Þar þurftum við að rölta upp í einhvern helvítis turn og ég hélt að ég myndi deyja á leiðinni, veit ekki afhverju ég þurfti að labba einhverjar 300 tröppur. Við vorum svo komin á gistiheimilið kl hálf 5.
Við áttum svo pantað borð kl 7 þannig það fóru allir að gera sig til en rútan fór í miðbæinn kl 6. Rétt fyrir 6 þegar allir voru til og voru bara að bíða eftir að komast af stað buðum við Inga upp á veitingar, hún með hákarl og ég með Opal skot. Mínar veitingar voru töluvert vinsælari :D
Við vorum komin á staðinn rétt fyrir 7 og byrjaði kvöldmaturinn með Fishermans Friend. Fengum geggjaðan mat og að sjálfsögðu meira áfengi. Það var bjór, strawberry decury og fleiri skot. Var orðin dulítið ölvuð þegar við fórum af veitingastaðnum á djammið. Þar var meira áfengi og þjóðardans dana dansaður. En við erum 100% á því að danir læra við fæðingu dansinn hans Sæma ekkert nema sveiflur og hringir, getur verið svolítið hættulegt þegar margir eru samankomnir á dansgólfinu eða bara þegar áfengið er orðið of mikið :D. Lenti 3 í sama trúnóinu og það er mikið erfiðara á dönsku!! og Inga var meira að segja dregin inn í trúnóið. Bekkurinn yfirgaf svo skemmtistaðinn kl hálf 2, þá var fengið sér að borða og farið í taxa heim. En svo kom a la Bakkafjörður, bekkjabróður minn kom í heimsókn í stelpuherbergið á brókinni, dejavu eingetinn :D
Svo var ræs kl 7 í morgun, keyrt til Árhús til að hlusta á annan fyrirlestur um múrsteina og fólk var mishresst. Eftir 3 tíma fyrirlestur og rölt um fyrirtækið var farið niður í bæ að fá sér að borða, löngu kominn tími til!! Eftir matinn var svo farið í 3 tíma rölt um Árhús og við hvert tækifæri settist meirihlutinn af hópnum niður. Ákaflega hress. Svo var bara rúnturinn heim eftir þar sem var sofið næstum alla leiðina.

Þema lag ferðarinnar er: Ding dong her kommer den ejermand.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hæ, það er greinilega voða gaman í Danmörkinni. Gaman að lesa blogg sem vel skrifað og maður skilur:) hafðu það fínt í Veldinu, heyri í þér. P.S: farðu að hringja aftur, til hvers að vera með ókeypis símtöl ef það er ekki notað(alla vega ekki til mín).

Nafnlaus sagði...

Vá hvað það er mikið stuð hjá þér! Dí hvað mig langar að vera með þér og djamma! En það nálgast í desember svo að það er ekki spurning að þá verði djammað. Eitt sem ég sé athugunar vert við þetta er að þú verður orðin miklu meiri drykkjubolti en við og svo verður enn erfiðara að skilja þig á trúnó því nú verður það víst bara á dönsku!

Nafnlaus sagði...

Haha, ég sé hann Jakob alveg fyrir mér. Segðu: nej tak Jakob, jeg vil ikke mere. En þú gleymdir nú að minnast á flugferðina hennar Ingu. Ég sagði mömmu frá því í gær og við gátum nú alveg hlegið af því. En það er bara rúmlega vika núna snúllan mín.

annan sagði...

Heiða: bjalla bara í þig í kvöld.

Gunga: Þetta er nú fyrsta fylleríið sem minnir á okkar djömm en það er djamm 16 des. perra style.

Auður: Ég kann mig alveg, veit að það er sumt sem maður skrifar ekki á netið fyrir alþjóð.