mánudagur, desember 04, 2006
Komin heim
Jæja, komin heim aftur. Kíkti til Sønderborg um helgina. Lobba, Gulli, Jói, Dísa og Gagga ætluðu að koma og ná í mig og að sjálfsögðu þreif ég höllina en svo var ákveðið að ég myndi taka leigubíl til þeirra þar sem þau ætluðu að fá sér að borða. Ég komst að því að það er bara snillingar í minni fjölskyldu, þau voru að leita sér að stað og eini staðurinn sem þau fundu var hjálpræðisherinn, fengu niðurgreiddan mat frá danska ríkinu, bara snillingar. En svo rúlluðum við að stað til Gunna og Jónu, Jói og Gulli fram í og við hinar allar sofandi aftur í, svo þegar Dísa rumskaði á leiðinni, kom alltaf upp úr henni: hva?? hvar er bjórinn?? Nokkuð skondið. En svo komum við á leiðarenda þar sem við komum okkur fyrir og svo elduðu Gunni og Jóna fyrir okkur. Geggjaður matur. Um kvöldið var svo drukkið smávegis. Á laugardaginn var svo farið á göngugötuna að versla og Malla og Ýmir komu með og kallarnir skruppu á meðan til Tyskland. Systurnar voru rosalega heppnar að hafa okkur hinar, því einhverjir þurftu að halda á öllum innkaupunum. Eftir verslunarleiðangurinn var sest á kaffihús og fengið sér smá bjór og svo þurfti að fara að fá sér fegurðurblundinn. Laugardagskvöldið var svo farið á Mongólískt BBQ og þar var sjúklega góður matur, nema Dísa fékk skemmda önd a la Gulli. Svo fórum við á pub-arölt, og Jói keypti Danfoss. Sunnudagurinn fór í A-Z og Jysk og systurnar voru nú ekkert rosalega ánægðar með þær búðir, á meðan voru kallarnir í menningarferð og fóru á eitthvað kastalasafn. Við áttum svo pantað borð í jólahlaðborð kl. 6, og vorum að borða til hálf tíu, þegar ég fór í lestinni heim. En helginn var geggjuð í alla staði. En núna eru 12 dagar í að ég komi heim og þá verður djammað!!!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Vá, það hefur aldeilis verið stuð um helgina. Náði samt ekki að meðtaka allt sem þú varst að tala um, kannski skiljanlegt líka. Bara stikkorð en samt þekki ég fjölskylduna mína það vel þannig að þetta hefur bara verið skemmtilegt. Heyri annars bara í þér snúllan.
Já auðvita er alltaf gaman að djammarastmeð fjöldkyldunni okkar! en 2 sem ég skildi ekki alveg:
1. ala gulli hvað?
2. Afhverju keypti pabbi danfoss?
kv. Atli
SÆL SNÚLLAN MÍN.....+
JESSS ÞÚ FERÐ AÐ KOMA;O) SNITSEL FRANSKAR OG PIPARSÓSA!!!!!! HAHAAHA
EN JÁ HAHA FJÖLSKILDAN OKKAR Í ÚTLÖNDU ER EINS OG JÓNAS OG FJÖLSK Á FERÐALAGI MANSTU;O) HEHE
EN ALLAVEGA HLAKKA TIL AÐ SJÁ ÞIG......
Skrifa ummæli