
BÚIN!!!!
Loksins loksins, helvítis prófið búið. Vá hvað þetta var erfitt, mér finnst almennt erfitt að halda fyrirlestur en 10 mín á DÖNSKU?? Hell! Var brjálæðislega stressuð en kennararnir voru ekkert smá almennilegir. Gekk alveg ágætlega, fékk 7 og mjög ánægð með það. En fer örugglega að koma mér í það bráðum að setja inn myndir og myndbönd frá jólafríinu. Alveg nóg af myndböndum þaðan.
Bið bara að heilsa ykkur í bili.
1 ummæli:
Freyðivínið komið upp. Og mín bara farin að telja niður til næstu jóla, það er ekkert smá :D
Skrifa ummæli