föstudagur, júlí 06, 2007

Nú fer að koma að þessu

Jæja nú er ekki langt þangað til að maður leggji af stað úr bænum. Strax eftir vinnu er komið að því. Ferðalagið hefst kl 5 í dag. Mér skilst að í dag eigi að rúlla á Búðardal og á morgun eitthvað lengra, svo á sunnudaginn eigum við að vera mætt um hádegi til að taka ferjuna sem fer með okkur út að vita. Mánudagurinn er svo göngudagurinn, 35 km skilst mér á Sæmundi. Bara fjör!!
Þriðjudaginn förum við eitthvað annað á vestfirði og svo á miðvikudaginn aftur að bílunum. Fimmtudagur er svo h0me sweet home.
Læt ykkur vita ef ég lifi af annars nice knowing you.

1 ummæli:

Auður sagði...

Læt ykkur vita ef ég lifi...
Ertu sem sagt dauð eða? Var þetta bara hylling sem ég tók með mér á káta daga? Mér finnst nú kominn tími á smá blogg, það er fínt að nota veikindi í að blogga. Segja frá manninum þínum og hverjir buðu upp á ást og umhyggju, fólk er alveg að missa af þessu hjá þér