Ég kom til landsins 18. júní og byrjaði að vinna daginn eftir. Bara stemning, vann þar í 2 mánuði og veit eiginlega ekkert hvað ég var að gera eða átti að vera að gera.
Það var farið í nokkur ferðalög í sumar það fyrsta var gangan me
ð familíunni. 6 júlí var brunuðu ég og Jói eftir vinnu til Búðardals að hitta restina af liðinu. Auður og Víðir komu frá norðurlandi en restin úr bænum. Restin var mamma og Sæmi, Berta, Hólmgeir, Íris og Sirrý. Að venju var helvíti gaman hjá okkur en fólk komst að því að það hefði misreiknað tilgang ferðarinnar. Þar sem ég og Jói vorum þau einu sem vorum ekki með tjald, tjaldvagn eða fellihýsi ákváðum við á laugardeginum að bruna til Borganess og ná í Vínbúðina með lista frá liðinu. Hittum þau svo seinna um daginn rétt hjá Hólmavík.
Gistum svo næstu nótt á Finnbogastöðum í Trékyllisvík, þar sem við krössuðum ættarmót og vorum misvinsæl. Þar byrjaði líka kríuævintýrið. Þar var geggjaður frisby völlur og í norðurfirði var svo geggjuð sundlaug sem við skelltum okkur í.


Gistum svo næstu nótt á Finnbogastöðum í Trékyllisvík, þar sem við krössuðum ættarmót og vorum misvinsæl. Þar byrjaði líka kríuævintýrið. Þar var geggjaður frisby völlur og í norðurfirði var svo geggjuð sundlaug sem við skelltum okkur í.

Á sunnudeginum mætum við svo í Norðufjörð þar sem báturinn sem sigldi með


Á mánudeginum var svo lagt af stað í gönguna sjálf, þar voru heilmargir brandarar en sá sem lifir ennþá er 400 metrar og halda hæðinni. Ég býst ekki við að Hólmgeir fái nokkur tímann að gleyma því. Alla vegana var landslagið geggjað og ég komst að því að ég hafði ekki hugmynd um það hvernig Vestfirðirnir litu út. 11 tíma ganga og byrjað að plana næstu, ekki kannski alveg fyrir mig en félagskapurinn geggjaður og býst við að láta draga mig í næstu ferð líka.
Á þriðjudeginum fórum við með bátnum til Reykjafjarðar, smá

Loksins kom svo báturinn og við lögðum af stað til Reykjafjarðar, þurftum ekki

Við fréttum að við gætum fengið vöflur eða eitthvað álíka uppi í aðalhúsi og ákváðum að skella okkur á það. Á leiðinni þangað kom gullmoment að Jóa áliti, mér fannst það ekkert svo sniðugt. Krían var alveg brjáluð og ég held að ég hafi verið sú 5 í röðinni yfir en hún ákvað að ráðast á mig, ég hef svo mikla sjálfsbjargarviðleitni og ég hrundi í jörðina í fósturstillingu, drop down and play dead. Allir biluðust úr hlátri, bróðir minn sérstaklega, Hólmgeiri fannst þetta ekki alveg jafn fyndið og hinum, hann var sá eini sem sýndi þessu einhver skilning. Við erum víst álíka hrifin af þessum helvítið kríum. Eftir geggjað lummupartý leiddist okkur aðeins, strákarnir fengu reyndar mest að kenna á því, það var smá dragmáling í gangi. Ég á fullt að myndum af því en út af góðmennsku ætla ég ekki að setja þær á netið. Í Reykjafirði er geggjuð sundlaug og var að sjálfsögðu farið í hana og sumir fóru í aðra göngu. Það var einmitt í Reykjafirði sem ég rústaði Hólmgeiri í keppni okkar á milli, en sú keppni gekk út á það hvort okkar var morgunfúlla, þeir sem þekkja mig finnst það kannski ekkert skrítið. Ég var vakin miðvikudagsmorguninn með brjáluðu pikki í öxlina af Hólmgeiri, ég svar illa, of lítið og var með túrverki, mín varð brjáluð og ég held að ég hafi ekki talað við neinn í 2 tíma. Hólmgeiri fannst þetta stórsniðugt. Þegar ég var að klára að pakka kom Hólmgeir aftur og byrjaði aftur með pikkið, hann var ekki lengi að fá stútfullan bakpoka í sig og ég ákvað að hefna mín á honum og byrjaði að pikka á móti. Það fannst honum ekki alveg jafn pirrandi og mér, ekki fyrr en Berta sagði mér að ég ætti að pikka í bringuna á honum, þá gekk þetta allt saman. Takk Berta.
Eftir að koma í land í Norðufirði ákváðum við að tjalda eina nótt til viðbótar saman og brunuðum við til Hólmavíkur. Þar kom brandari ferðarinnar og var það samvinna hjá mömmu og Sæma, allir í formi, formi, kökuformi. Það munaði ekki miklu að við

Þetta var geggjuð ferð í alla staði og spil ferðarinnar var veiðimaður, veit ekki hversu oft við spiluðum það.



Nenni ekki meiru núna, bæti restinni við seinna. Heyrumst.

3 ummæli:
Drop down and play dead var víst fyndið. Ég meig næstum í mig af hlátri! Sé þetta alveg fyrir mér.
En þetta var bara snilldarferð. Æðey 2008, ég er ready!
meira meira....
atli
Genial dispatch and this enter helped me alot in my college assignement. Gratefulness you on your information.
Skrifa ummæli