föstudagur, október 12, 2007

Heim og heim aftur

Góðan daginn.
Fyrir þá sem ekki vita var ég á Íslandi seinustu helgi. Þeir sem hittu ekki á mig hefðu bara átt að mæta á geðveikt ball í Krikanum. Ég var reyndar búin að ákveða að vera ekkert allt of mikið að fara í heimsóknir, hafði nefnilega ekki allan tímann í heiminum, en ég fór að sjálfsögðu til Herdísar og Ragga og Diddu með pakka. Strákurinn hjá Diddu og Ragga er ekkert smá sætur, hlakka bara til að sjá hann aftur um jólin og þá með litlu frænku eða frænda sínum.
Helgin var samt snilld. Föstudagssteiktu a la mamma með stelpunum hans Sæma og systkinunum og svo bara setið og spjallað. Laugardagurinn byrjaði upp á 8 fyrir leik og svo rúta tekin á leikinn sem að sjálfsögðu vannst, bara stemmning. Eftir leik var tekin einn bjór á 8unni áður en liðið fór heim að sturta sig. Auður, Víðir og Gunga komu svo til mömmu eftir mat þar sem við flest fengum okkur aðeins í stóru tánna en aðrir alla leið upp að hné. Sæmundur labbaði svo með okkur á ballið til að hitta Lobbu og Gulla en endaði svo að nenna ekki að bíða eftir þeim. Ballið var geggjað!!! Paparnir klikka ekki, hvað þá þegar Bubbi syngur með þeim. Hitti fullt af vitleysingum sem ég hef ekki djammað með í heillangan tíma. Sumir kynntust því hversu mikið þorp Hafnarfjörður getur verið, allir vita allt um alla og frétta allt. Sunnudeginum var að sjálfsögðu ekki eytt í þynnku, bara drifið sig út og kíkt á ömmu og í Kringluna og gert eitthvað að viti. Við systkinin kíktum svo á gamla manninn í mat á sunnudeginum. Eftir mat fór ég á kveðjurúnt. Byrjaði á að kíkja á friðarsúluna með Gungu, góður ís. Sótti svo Atla til að fara í morgunkaffi hjá Ásdísi og kíkti svo loks á Auði. Mánudagurinn fór svo í það að fara í Fjarðarkaup og versla vörur sem fást ekki í danaveldi. Geggjuð ferð.

Hef samt komist að því að það getur verið svolítið hættulegt að fljúga með Gunna frænda, ef það gerist einhver tímann aftur vona ég að Jóna verði líka með í för.

3 ummæli:

Gunnsý sagði...

Það er ekki lengdi sem skipti máli það er hvernig þú notar orðin :D Hef heyrt að Hafnafjörður sé lítill bær. Kannski ágætt að vera untanbæjar manneskja og þurfa ekki að kynnast því!

Nafnlaus sagði...

Jæja, ég er orðin pínu þreytt á þessu langa blogg hérna hjá þér! Er það kannski endalaust?

annan sagði...

Fer beint í þetta eftir að mamma og Sæmi fara.