Jæja komin tími á að blogga um þegar heimsóknir sem er búnar að vera í gangi.
Um seinustu helgi skellti ég mér á miðvikudeginum til Köben að hitta Atla. Vorum búin að ákveða að skella okkur í Tívolí. Hittumst á Hovedbandgården í Köben þar sem við skildum farangurinn okkar eftir svo við þyrftum ekki að dröslast með hann allan daginn. Við skelltum okkur í öll almennulegu tækin einu sinni og þá gat ég ekki meira. Fékk þvílíkt í magann og var á mörkunum að æla. Ekki vinsæl hjá Atla, hann var búinn að hugsa þetta þannig að við færum alla vegana 3x í öll bestu tækin. Við prófuðum að taka smá pásu frá Tívolíinu og tölta á strikinu og leita að draslbúðinni sem við fundum svo á endanum.
Við fengum okkur svo að borða á einhverju kaffihúsi áður en við tókum lestina til Gunna og Jónu, 4 tímar í lest!!! Ætla bara þakka Ásdísi frænku fyrir það að hafa lánað Atla ferða DVD spilarann hennar. Gunni kom svo og sótti okkur á brautastöðina með sitthvorn kaldan fyrir okkur og svo var bara rólegt kvöld eftir það. Á fimmtudagskvöldinu eldaði Atli íslenskt lamb fyrir okkur með íslensku kaftöflugratíni, heppnaðist ágætlega hjá honum. Eftir matinn fórum við og hittum vini Gunna og Jónu á Bryggeriet minnir mig og það var drukkið ágætlega það kvöld. Á föstudeginum var Gunni búin að plana stráka Go-cart og ég og Jóna ætluðum bara að finna okkur eitthvað að gera, svo fattaði Jóna allt í einu að hún var að fara á einhverja kynningu hjá skólasystur sinn þannig að ég skellti mér bara með í stráka Go-cart og tapaði ekki, vorum 10 og ég var í 9unda :D Um kvöldið hittist hverfið hjá Gunna upp í keiluhöll, sem einn nágranna Gunna á, þar var keilað, borðað hlaðborð, keilað meira og drukkið endalaust fyrir 100 krónur danskar. Getum bara sagt að við frændsystkinin nýttum okkur það. Þegar okkur var hent út vegna lokunar skelltum við Atli okkur í bæinn, drukkið meira, Atli reynda drepa Möllu, drukkið ennþá meira, dansað, drukkið meira og geðveikt stuð. Við Atli nenntum ekkert að vera að fá okkur leigubíl, ákváðum að labba heim og þessi göngutúr okkar ætti að fara í sögubækurnar. Bara snilld. Á laugardeginum kíktum við í búðir þar sem Herdís átti á föstudeginum og við vildum senda henni eitthvað með Atla. Fórum svo út að borða á Mongóliskt bbq, besti matur í heimi, kíktum svo á kaffihús og hittum vini þeirra aftur þar. Þeir sem að þekkja mig finnst kannski ekki skrítið að ég ákvað að vera edrú þetta laugardagskvöld og fór svo snemma heim að sofa. Sunnudagurinn fór svo í mest lítið, fengum okkur hálfa hálfmána í kvöldmat áður en ég tók lestina aftur til baka. Takk fyrir mig og takk fyrir SNILLDAR HELGI!!!
Mamma og Sæmi komu svo á fimmtudaginn síðasta, þannig að fyrri hluta vikunar var ég að þrífa. Mamma hringdi í mig þegar þau voru komin í lestina og sagðist ætla að hringja þegar þau væru komin nær. Þegar ég var að vinda tuskuna eftir að hafa þurkað af seinast borðinu hringdu þau og sögðust standa fyrir utan, góð tímasetning. Við löbbuðum upp í bæ og kíktum í nokkrar búðir, settumst á pub og keyptum svo gjöf handa Kim. Fengum okkur geggjaðan kvöldmat, versluðum aðeins í ísskápinn, töltum heim og spjölluðum svo bara. Á föstudeginum fórum við í heimsókn til Kim og hann var búinn að plana allan daginn. Löbbuðum um Faaborg, fengum hádegismat og svo var bara spjallað og spjallað. Þegar kom að því að fara heim vorum við búin að missa af rútunni og hefðum þurft að bíða í einn og hálfan tíma eftir næsta vagni, Kim hemtaði að fá að skutla okkur heim sem var ágætisferð. Fengum okkur svo bara slísí pizzu í matinn og sátum svo og spiluðum og drukkum smávegis um kvöldið. Á laugardeginum var Inga búin að bjóða okkur í Brunch, geggjuð súpa, við ákváðum nefnilega að mömmurnar okkar þyrftu að kynnast, við eigum það nefnilega alveg til að láta þær redda einhverju fyrir okkur á Íslandi. Við kíktum svo í Rosengårdscentret og versla smávegis, við mæðgurnar ekkert rosalega vinsælar hjá Sæma. Fórum heim með alla pokana, þau pökkuðu og svo fengum við okkur Goa á leiðinni upp á lestarstöð. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn.
Jæja, þetta ætti að duga í einhvern tíma. Það kemur væntanlega blogg í næstu viku þar sem í fyrramálið verður farið í skólaferðalag yfir eina nótt. Alltaf eitthvað skemmtilegt sem gerist í þeim.
Heyrumst seinna.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Ég verð að játa að ég vona svo innilega að heimsóknin eftir áramót verði ekki alveg svona blaut :)
nei, bara svona hnakkablaut? er odense ekki annars örugglega hnakkabær danaveldis?
hvað er annars Goa?
en pant hafa svona mikið gaman þegar við förum í okkar ferð til þín í vor...
Hæ!
Takk sömuleiðis!
en anna þú veist að það verður aldrei svona mikið fjör aftur, nema þegar ég kem næst ;)
kv. Tilvonandi baunabúi
Bíddu bíddu, það er bara geggjað fjör með mér ;)
Rosalega er þetta löng heimsókn ;)
Uss, láttu ekki svona.
Hún er ennþá að jafna sig eftir skólaferðina. Þar sem hún hefur örugglega náð sér í einhvern nafnlausan :)
blogg blogg blogg!!! koma svo. You can do it Anna (lesið með rödd Rob Schneider...)
Skrifa ummæli