fimmtudagur, janúar 10, 2008

Smá pæling

Ég ætla aðeins að athuga hversu færar konur ég þekki.
Fyrst það var verið að skjóta aðeins á mig hérna í síðustu færslu hef ég ákveðið að svara fyrir mig.
Í bekkjarpartýinu hjá Ingu fyrir jól fóru strákarnir í bekknum að reyna að losa brjósthaldarann hjá Louise með annar hendi, þeim gekk svoldið erfiðlega þannig að ég ákvað að hjálpa þeim. Á no time var ég búin að opna hann en þá komst ég að því að það eru ekki allir kvenmenn sem geta það.
Þetta var eitthvað sem ég hélt að allar konur kynnu sem eru búnar að vera með brjóst í einhver ár.
Jæja stelpur, endilega látið mig vita hversu færar þið eruð.
Eruði færar um að losa brjósthaldar með einari???

11 ummæli:

Gunnsý sagði...

Aldrei prófað það með Einari. Á samt soldið erfitt að losa með annari.

Auður sagði...

Ég og Einar vinnum vel saman í þessu. Þetta hlýtur bara að vera eitthvað í genunum

Nafnlaus sagði...

Hey, ég get þetta;D

kv. A

annan sagði...

Ég trúi þér ekki Gunnfríður, ég hélt að allar konur gætu þetta fyrir utan Ingu.

Að sjálfsögðu getur þú þetta systir mín.

Atli, þú ert hetjan mín.
Þú ert kyni þínu til sóma en sýnir reyndar líka að það vantar sumt í suma af mínu kyni.

Gunnsý sagði...

Hey ég og Inga stöndum saman í að losa með báðum!!!

Nafnlaus sagði...

Totally Gunga ... it's you and me ;) held bara að þessir hafnfirðingar séu eitthvað öðruvísi.. Brjósthaldarar eru hannaði þannig að það sé erfitt að gera þetta með Einari og annarri hehe En held nú alveg að ég gæti þetta á annarri manneskju en mér ... kannski bara best að spýta í lófana og fara að æfa sig á Önnu í skólanum í tíma og ótíma ahahahah

Auður sagði...

hahaha, sé það alveg fyrir mér. Anna verður bara að mæta í 2-3 brjósthöldurum í skólann

annan sagði...

Auður þú átt náttúrulega að sýna mér stuðning í þessum málum.

Inga. Bring it on. Ég kann þetta og get líka gert þetta í skólanum, hehe.

Auður sagði...

Djöfull á eftir að vera gaman hjá strákunum í skólanum, hehehe!

Gunnsý sagði...

Þetta er miklu auðveldara með Einari!

Auður sagði...

Bíddu nú við, ég hélt að Einar væri ennþá úti á landi?? Missti ég af einhverju :)