þriðjudagur, ágúst 15, 2006

Cheak list

Jæja komið að því að gera cheak lista yfir það sem er búið að kaupa.
Það sem er komið er:
rúm
tölva
matarstell
eldhúsborð
sjónvarpsborð
sjónvarp
pottar
panna
ofn
sófaborð
skúringarsett
kúst
alls konar eldhúsdrasl
og að sjálfsögðu...

SVEFNSÓFI!!!

það eina sem vantar núna er hjól annars er ég bara orðin góð. Inga er alveg búin að vera tapa sér að hjálpa mér og ég hefði aldrei getað gert þetta án hennar.

En í gær var farið til Århus og farið í IKEA á tveimur hæðum og það var geggjað. Ég var alveg að tapa mér, hefði alveg getað keypt og keypt og keypt. En þeir eru svo leiðinlegir hérna í Danmörku að þeir vilja alltaf fá pening fyrir allt sem maður kaupir!!

En það er komin matur hérna á hótel Ingu þannig að ég heyri bara í ykkur seinna,
hilsen.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ahhhhhh... Þvílíkur draumaheimur! Tveggja hæða IKEA! En ég verð víst bara að ímynda mér það. Ætlaði annars ekki að segja neitt meira, en svo tók ég eftir hvað tjékk listinn þinn er vel skrifaður! Ó þér ensku snillingur. Heyri bara í þér snúllan mín!

Nafnlaus sagði...

Er þetta tékklistinn sem þú gerðir í matarboðinu mínu?

annan sagði...

Hvað ertu að rugla Auður?? Skil þig ekki alveg.

Nei listinn sem ég gerði í matarboðinu var um það sem ég þurfti að gera áður en ég færi :D.

Nafnlaus sagði...

Hehehe þú þarft að sýna gunna þessa´IKEA búð, eitthvað að tregast hjá honum;) en gaman að geta fylgst svona með þér kv. Atli

Nafnlaus sagði...

Hey þú ;o)

Vá hvað ég sé þig fyrir mér í stórri ikea!!! fjúffff;o/ en frábært að þú skulir nú hafa ingu með þér í þessu... og hyrru bara gangi þér að finna íbúð og allt það.... love yoy....

Herdís,Sindri Freyr,Katrín Sól og Ragna Lára(gribba litla;o)

Nafnlaus sagði...

Var nú bara að setja út á hvernig þú skrifaðir þetta! þú veist, fyrisögnin. En þú ert allavegana búin að kaupa fleiri húsgögn en gunni og jóna. þeirra stíll einkennist af pappakössum sem borð og útilegustólar... Þú ert svo dugleg snúllan mín

Nafnlaus sagði...

Mér finnst nú samt lágmarkið að þú tilkynnir að þú sért komin með íbúð!! Held að það skipti nú mestu máli fyrir öll húsgögnin þín :)