fimmtudagur, ágúst 10, 2006

Danmörk

Jæja þá er maður lentur og búin að koma sér ágætlega fyrir hjá Ingu og Markúsi. Fórum í gær að athuga með íbúð og fundum eina sem ég get fengið á þriðjudaginn en hún er lengst úti í rassgati. Ætlum aftur í dag að athuga almenna markaðinn og svo á mánudaginn er road trip, það á að bruna í IKEA í Árhúsum og tapa sér þar.
Veit ekki hvað ég eigi að segja ykkur meira, heyrumst bara seinna.
Anna í danaveldi.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú getur ekki ímyndað þér allt sem fór í gegnum hausinn á mér þegar þú sagðir IKEA. Þyrftir helst að láta Markús elta ykkur Ingu með vidjókameru svo að ég fái að upplifa stemminguna! Hann verður nú að þjást eins og Víðir þar sem að hér eftir ÞARF Víðir að koma með mér af því að þú getur það ekki. En djísús hvað ég væri til í smá road trip í IKEA, örugglega einhverja húmöngus verslun. En ég held bara kannski áfram að vinna núna... :)

annan sagði...

Markus a ad mæta i skolann a manudaginn en hann ætlar ekki thvi honum langar svo mikid med i IKEA!!!

Nafnlaus sagði...

Neihei!!!! Hvar finnur maður svoleiðis menn?? Þú verður að leita að einum svona sjálf, svo við getur gert út af við Víði! haha, kannski finnast þeir í IKEA. En frétti að þú værir búin að finna þér tölvu, þó svo að þú sért ekki búin að fá hana. Það er nú samt fréttnæmt. En ég bið bara að heilsa Ingu og Markúsi. Skemmtið ykkur bara vel í guðshúsinu mínu.

Disa Skvisa sagði...

jæja Anna,

Ég er ready til að heyra sögur frá Danaveldi :D

Hafðu það gott og góða skemmtun í IKEA.