þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Lyklavöld

Jæja komin 29. ágúst í danaveldi.

Ok í gær fékk ég lyklavöld af nýju íbúðinni minni og ég á fullu að gera allt reddi til að geta farið að flytja.

Það er allt komið á fullt í skólanum og í dag fengum við hópverkefni sem við eigum að flytja eftir viku. Ég skil ekki alveg hvað efnið sem við eigum að tala um tengist námin en það vill svo skemmtilega til að minn hópur á að fjalla um... GRÖFUR!!!! eða gravemaskine.

En nú styttist í að tölva komi, 2 vikur and counting!!!

Ætlaði nú bara aðeins að láta ykkur vita að ég væri á lífi. Heyrumst bara seinna.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahaha! Vá hvað ég mislas fyrirsögnina... Las út lyklakvöld og sá hina blásaklausu systur mína fyrir mér á einhverju svaka trading keys djammi með fullt af fólki!!! Ekki alveg að ná þessu :) En það er nú gott að þú sért ennþá á lífi, gaman að vita af því. Vona bara að maður fái einhverjar myndir af þessari íbúð.

Nafnlaus sagði...

Hahahaha! Það er svo gaman að vera lesblindur. Ég las líka lyklakvöld og hugsaði um það nákvæmlega sama og Auður!! Svo las ég blása-klausa ekki blásaklausa. HEhehehehe. En til hamingju með íbúðina. Hlakka til að hitta þig í henni, vonandi fljótlega! En gröfur eru málið!

Nafnlaus sagði...

We make a good team! Vill einhver annar vera með okkur (les)blindu perrunum?? Það er alltaf hægt að bæta við

Nafnlaus sagði...

Haha, ég las það sama úr þessu en fór ekki alveg í sömu hugleiðingarnar en afhverju áttu að tala um gröfur...

Hey, bróðir þinn er að kenna mér;)

annan sagði...

Greyid Atli!!!

Ojj hvad thid erud miklir perrar!!!

Thad koma myndir af bádum íbúdunum um leid og ég fæ tølvuna mína.

Nafnlaus sagði...

Pétur á bróðir sem heitir Ólafur.

Nafnlaus sagði...

Hugsaðu þér, bara mánuður snúllan mín :)