sunnudagur, október 22, 2006

Snökt snökt

Ohh nú eru allir farnir!!!
En það var geggjað að hitta alla og helgin hjá Gunna og Jónu heppnaðist frábærlega.
Herdís og Atli komu og náðu í mig, Auði og Víðir um 1 föstudagsnóttina. Biggi og Andri voru búnir að frétta að þau væru á leiðinni og ætluðu að heilsa upp á þau. En það endaði með að þeir skelltu sér með og blæddu bjórnum. Það var dulítið þröngt en það var bara meiri stemning þannig. Við komum til Gunna og Jónu milli 3 og 4 og þá voru þau aðeins komin í það. Roland vinur þeirra var með þeim og heilsaði öllum á bauð velkomin, á íslensku að sjálfsögðu. Föstudagsdjammið endaði um 8 laugardagsmorguninn en Atli og Andri fóru aðeins fyrr að sofa en það. Á laugardeginum var svo vaknað um hádegi og Gunni var með hausverk í maganum. Við töltum út á Macann og Andri og Biggi tóku lestina aftur til Odense. Restin af okkur nema Gunni ákváðum að skella okkur til Þýskaland sem var kannski ekki svo sniðugt, því Gunni var sá eini sem rataði eitthvað þar. Loksins loksins fundum við Flensburg og eitthvað moll þar en það var svo mikið af liði þar að við nenntum ekkert að kaupa. Eftir að við komum aftur til Sønderborg fórum við saman út að borða, steik og flott heit. Klukkan 8 byrjaði svo djamm á kollegie-inu þeirra. Fólki var skipt upp í hópa og svo var labbað á milli íbúða og allsstaðar var að sjálfsögðu áfengi. Við fórum svo aftur í íbúðina hjá Gunna og Jónu þar sem paparnir voru spilaðir og mikið sungið. Ég komst að því að danir eiga líka lag sem allir kunna og þeirra lag er Neun und neunzig luftballons. Það var geggjað að fylgjast með dönunum syngja þetta lag. Við fórum svo í bæinn þar sem Gunni fór á kostum, náði að skera á sér hendina og hrynja á hausinn. Geggjað djamm en enginn veit hvenær það endaði. Á sunnudeginum var svo vaknað um hádegi og fengið sér að borða. Gunni greyið var meðvitundarlaus allan daginn. Stórslasaður á hendinni og á allan hátt ónýtur. Hafði rosalega gaman af því. Við lögðum svo af stað til Odense um 5 og það gekk ágætlega þangað til að við komum inn í Odense. Yours truely átti nefnilega að rata, villtumst aðeins. Komst samt á endanum heim. Auður og Víðir áttu að fljúga kl 22:50 og maður þarf víst að cheaka in einum og hálfum til 2 tímum fyrr. En það var brjáluð traffic og þau hlupu inn á flugvöll rúmum klukkutíma fyrir flug en náðu samt að koma sér í flug. Ég hefði alveg verið til í þau hefðu stoppað lengur.
En fer að setja inn myndir af öllu saman fljótlega.
Heyrumst.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ohhhhh, mig langar ekkert að vera á íslandi! er alveg að leka niður úr þreytu í vinnunni, enda frestaðist flugið aðeins hjá okkur eftir allt stressið. en heyri bara betur í þér fljótlega snúllan mín.

Nafnlaus sagði...

Váá takk fyrir síðast elskan og við verðum bara að taka andskoti gott djamm á þetta þegar þú kemur um jólin en farðu nú að læra:D:D

kv. atli, sá sem náði að vaka lengst á laugard.