sunnudagur, febrúar 04, 2007

Daginn

Góðan daginn. Jæja íslendingar í 8 sæti og komast ekki ÓL, danir spila í dag um bronsið. Verður vonandi fínn leikur og ég vona eiginlega að þeir tapi :S En það var mikið minna mál að mæta í skólann á miðvikudaginn en ég bjóst við. Það var skotið á mig fyrst þegar ég mætti, sit fremst og þurfti að labba fram hjá öllum til að komast í sætið mitt, og þá notuðu danir tækifærið til að nefna leikinn. Kim var búinn að veðja við okkur Ingu, ef við myndum tapa ættum við að vera með jólasveinahúfur það sem eftir var að vikunni, en svo eftir leikinn sendi hann sms um að það væri eiginlega ekki sanngjarnt og hætti við veðmálið. En það skipir samt eiginlega engu máli.

En fór til Helgu í gær í 30 afmæli og dagurinn í dag gæti alveg verið betri.

Haldiði ekki að það sé komin ný Ga-jol auglýsing?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HAHAHA, Gajol auglýsingin er ekki jafn góð og gamla en hún lét mig muna eftir gömlu:D:D:D:D

En bara kærlig hilsen til Denmark!

Gangi þér svo allt í haginn!

Nafnlaus sagði...

Það er að koma 3 auglýsingin, kem með hana um leið og ég finn hana. En sú fyrsta toppar þær allar!!!

Nafnlaus sagði...

Hæbb, var að skella mér niður eftir road trippið. Þetta var bara brilliant hjá okkur. Segi þér bara betur frá því. Annars endaði ferðin á því að löggan heilsaði upp á okkur :D Nokkuð skondið... En bið bara að heilsa í bili