Bara aðeins að láta vita af mér.
Mér var boðið í mat til Helgu og Frikka í gær, fékk geggjaða nautasteik. Ákváðum svo að spila Kana eftir matinn, sem er ekki alltaf að virka fyrir blóðþrýstinginn hjá mér. Frikki ákvað í seinasta spilinu að segja kana, fyrst hann var nú að tapa. Jújú að sjálfsögðu lenti ég með honum og það fyrsta sem hann sagði var að þetta væri svo fallið, þá steig blóðþrýstingurinn fullmikið, hann var farinn að plana hvert hann ætti að hlaupa þegar Helga myndi fella okkur. En sjálfsögðu reddaðist þetta rétt svo. En það var geggjað að taka eitt svona spilakvöld.
En ég heyri í ykkur bara seinna.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ohhh, kaninn skilar alltaf sínu! Langar einmitt í eitt gott spilakvöld. Við Birkir erum bara ekki alveg nógu klár að skipuleggja þau fyrirfram, fólk alltaf eitthvað upptekið :( En það styttist í að maður kíki aftur á þig. Vonandi gengur vel að þrífa haha. Svo kemur bara góður pakki til þín um næstu helgi. Heyri bara í þér.
Er ekki kominn timi til að láta aðeins vita af sér aftur??
hallú
kv. maðurinn í fýlu
Skrifa ummæli