mánudagur, júlí 30, 2007

Draumurinn

Jæja á lífi systur mín.

Nenni eiginlega ekki að segja frá öllum ferðunum, kemur örugglega bara þegar ég fer út. Þá sest ég niður og fer yfir sumarið.

Í hádeginu í dag ákvað ég að kíkja á fasteignablað moggans og sá ég ekki drauma húsið mitt sem ég var að pæla í að kaupa fyrir 2 árum. Það er núna komið í 17 millur og ekki nema 43,5 fermetrar og þetta er ekki einu sinni allt helvítis húsið, bara efri hæðin!!!





Mamma má bara ekki selja sitt hús, býst við að búa þar 5 ár eftir að ég kem heim úr námi!!

Heyri annars bara í ykkur seinna.

föstudagur, júlí 06, 2007

Nú fer að koma að þessu

Jæja nú er ekki langt þangað til að maður leggji af stað úr bænum. Strax eftir vinnu er komið að því. Ferðalagið hefst kl 5 í dag. Mér skilst að í dag eigi að rúlla á Búðardal og á morgun eitthvað lengra, svo á sunnudaginn eigum við að vera mætt um hádegi til að taka ferjuna sem fer með okkur út að vita. Mánudagurinn er svo göngudagurinn, 35 km skilst mér á Sæmundi. Bara fjör!!
Þriðjudaginn förum við eitthvað annað á vestfirði og svo á miðvikudaginn aftur að bílunum. Fimmtudagur er svo h0me sweet home.
Læt ykkur vita ef ég lifi af annars nice knowing you.

þriðjudagur, júlí 03, 2007