miðvikudagur, september 12, 2007

Föstudagurinn 5 okt


Jæja ég er að spá er einhver fílingur fyrir spila kvöldi þetta kvöld?
Mig dauðlangar að taka partý og co eða actionary með familíunni.
Hver er til?

þriðjudagur, september 11, 2007

Vi er sorte, vi er hvide

Búin að fjárfesta í miða.
Kem heim fimmtudaginn 4. okt og fer aftur mánudaginn 8. okt.
Hlakka til að sjá ykkur :D

I'm coming home

Búin að fá leyfi. Ég er á leiðinni heim í október á leikinn!!!
Nú er bara að panta miða!!!!

sunnudagur, september 09, 2007

Á morgun

Á morgun kemst ég að því hvort ég komi heim eða ekki. Þarf að tala við Kim sem er með mér í hóp og fá leyfi. Ætla að skoða hvort það sé rétt hjá okkur Ingu að þetta sé vikan sem við skilum verkefninu okkar og ætti þess vegna að eiga helgarfrí. Geðveikt spennandi.
Það er samt geggjað að vita hversu mikið manns er saknað.
Atli, ég er búin að kaupa hlut fyrir Heiðar Snæ í staðinn fyrir fánann sem við eyðilögðum. Mikið nauðsynlegri hlutur til að hafa með á völlinn. Ég verð eiginlega að gefa honum það í eigin persónu er það ekki?
Alla vegana, læt ykkur vita á morgun hvað Kim segir.
Þangað til, bið að heilsa.

þriðjudagur, september 04, 2007

Pæling

Jæja, nú er smá pæling í gangi.
Á maður að mæta heim 6. október??
Mig dauðlangar, en er það hægt?
Látiði mig endilega vita hvað ykkur finnst.