Halló.
Var aðeins að fikta í síðunni og fór allt í klúður. Er að vinna í þessu, kemur kannski um jólin.
En er að drukkna í skólanum. Kannski komin tími til, ekki búið að vera mikil vinna fram að þessu. Hef 3 vikur til að klára öll verkefnin mín, semja fyrirlestur og skila rapport. Allt saman á dönsku að sjálfsögðu. Svo er það bara lokaverkefnið!! Smá krísa í gangi en alltaf bjartsýn ;)
Bið bara að heilsa ykkur í bil.
Heyrumst.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
8 ummæli:
gangi þér vel Anna mín í þessu öllu saman!!! ég er ekki að öfunda þig þessa stundina. hlakka til að sjá þig sem fyrst!!
Að sjálfsögðu á maður að vera bjartsýn. Þú rúllar þessu upp! Svo þegar ég laga loksins tölvuna mína þá get ég spjallað við þig og aðstoðað þig með þetta allt saman. Þú veist jú að ég er snillingur í byggingafræði og sérstaklega á dönsku :)
En djí hvað mig vantaði þig að horfa á Grey´s í gær. Held þú þurfir bara að downloada þessu og horfa samtímis mér. Svo ég geti nú spjallað um þetta allt saman við þig.
Ætlaði bara aðeins að láta heyra í mér...
Takk fyrir traustið. Veit ekki hvort ég komist eitthvað í heimsókt og klippingu. Læt þig vita.
Aldrei að vita hvað manni dettur í hug með Grey's. Hef samt alveg nóg að gera í skólanum þú veist.
Hæ sæta mín....
það er aldeilis brjálað að gera hjá þér snúllan mín;o/ en hey ert hetjan okkar manstu svo við á þessu heimili höfum sko tröllatrú á þér;o) og Ragna bíður sko spennt eftir jólunum... og ekki útaf jólasveini eða pökkum!!! Anna mín er að koma á jólunum ;o) og hún segir það sko ÖLLUM...
söknum þín....
Vá hvað mér brá að lesa kem kannski um jólin. Svo fattaði ég ;)
Auðvitað er ég að koma heim um jólin, og loksins er innan við mánuður
Tók nokkrar myndir fyrir þig í snjókomunni og ætla að reyna að henda þeim inn áður en ég fer út. Vonandi tekst það. Gangi þér bara vel að læra í dag snúllan mín. Heyri í þér
Þarna eru myndirnar frá laugardagskvöldinu. Þær eru nú ekki margar og engar af queer eye leiknum okkar. En þar eru nokkrar snjómyndir. Endilega kíktu við... http://www.picturetrail.com/audurreykdal_1
Skrifa ummæli