Jæja á föstudaginn var fótboltamót í skólanum, bekkur á móti bekk. Búið að eyða seinustu vikunni að smala í lið og vorum komin með 8 manna lið. Það átti að vera 6 inn á í einu, þannig að við vorum með 2 varamenn, sem passið mjög vel fyrir strákana í bekknum að geta tekið smá pásu. Á föstudaginn mættu svo bara 6, þannig að það var spilað án varamann og þá lá við að Niels fæddi barn í hverjum einasta leik, hann var svo móður að það var eins og hann væri kominn með hríðar. Nokkuð skondð. Við Inga vorum búnar að plana að vera cheerleaders og vorum búnar að redda okkur pompom sem Auður sendi frá Íslandi, ekki spurja af hverju, en þeir voru því miður ekki komnir þannig að við stóðum bara og öskruðum í 25° hita og ég er ekkert smá sólbrunnin. Eftir mótið fórum við svo heim til Ingu að djamma og vorum svo heppin að Markús hélt partý helgina áður þannig að það var nóg af áfengi. Ætluðum að panta okkur eitthvað að borða saman en það gleymdist einhvern vegin og við sátum bara úti á svölum hjá Ingu og borðuðum ostehaps, gerist ekki betra. Bekkurinn okkar fór svo smám saman að týnast heim og komu aðrir í staðinn, þar á meðal Andri með einhverja vini sína. Kíktum í bæinn þar sem Andri týndi símanum sínum af því að hann var með brjálaðan brandara að kippa buxunum niður og labba þannig um staðina, ágætis brandari. Ég var samt heppin að komast heim til mín, gangstéttin var nærri því ekki nógu breið, mín var svolítið ölvuð. Blandaði allt of miklu saman.
Laugardagurinn fór svo bara í þynku, ég skalf og leið ömurlega. Hringdi í Ingu og athugaði hvernig hún hefði það, henni leið töluvert betur en mér, kannski af því að hún var ennþá ölvuð. Ákváðum að fá okkur subbulegann hamborgara í kvöldmat þannig að ég skellti mér í strætó til hennar og sátum svo og horfðum á sjónvarpið um kvöldið. Fínt þynku kvöld.
Komst að því svo í dag að ég get ekki ennþá rifið kjaft á dönsku og það fer óherilega í taugarnar á mér. Keypti mér bol í seinustu viku og fór í dag og ætlaði að skila honum. Ef maður kemur með strimilinn fær maður peninginn til baka, en nei, mín mætti með bolin og strimilinn en þá hafði ég fengið vitlausan strimil þegar ég keypti bolin og gat bara fengið inneignarnótu og ég var orðin vel pirruð þegar ég labbaði út úr búðinni. Hefði alveg verið til í að geta tekið mömmu á þetta en maður verður víst að kunna tungumálið til þess. Ennþá svolítið pirruð yfir þessu öllu saman.

Gaman að deila þessari mynd með ykkur, bið bara að heilsa í rokið og rigninguna :D
1 ummæli:
Þú og gangstéttir! Hahahaha, held það þurfi að leggja til að breikka þær aðeins, allavega í þínu hverfi. En gaman að vita að það er líka til þynnka í danaveldi, en sá samt einhver að þú varst ölvuð? Fólk virðist alltaf missa af því hjá þér, dónt nó há! En sé þig eftir innan við 2 mánuði, bið bara að heilsa á meðan. Annars er ég farin á "alvöru" fótbolta!
Skrifa ummæli