miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Fyrirframframleiddar einingar

Við fórum í skólaferðalag mánudaginn 29. okt bright and early kl 8. Við fórum að meira segja með OB rútunni sem var meira sport fyrir suma en aðra. Kíktum á steypueiningar, þakeiningar, stálsperrur og stálprófíla og svo álsperrur. Man ekki alveg í hvaða röð þetta var en það skiptir reyndar engu.
Um kvöldið var farið út að borða á Ástralskan stað þar sem var spare ribs hlaðborð og maður gat fengið sweet&sour spare ribs, venjuleg spare ribs og chili spare ribs. Frábært úrval!!! Ekki allir ánægðir með það en það skiptir engu. Eftir matinn var ákveðið að fara eitthvað að djamma og fengum leiðbeiningar og að sjálfsögðu gátum við ekki farið eftir þeim og enduðum í einhverri dead end götu þar sem ekkert var í gangi. Eftir að hafa labbað allt of lengi settumst við inn á plebba bar og ákváðum að fara í 7/11 kaupa bjór og fara aftur upp á gistiheimili. Spiluðum pool, þythokký og svo var spjallað og haft gaman. Morgunmaturinn var svo á kl. 7 þriðjudagsmorguninn, gríðalega hress mannskapur.
Heimkoman var svo kl. 6 seinnipartinn á þriðjudeginum.

Jæja, nú er ég búin að segja frá ferðinni og þið getið látið mig vera :D

1 ummæli:

Auður sagði...

Ji, ég er bara alveg að drukkna í þessum nákvæmu lýsingum hjá þér...
En ég held að þetta eigi eftir að skipta mestu máli þegar ég loksins vel mér nám, hversu oft verður farið í svona skólaferðir hehe, enda nýkomin af pub á miðvikudagskvöldi.