þriðjudagur, febrúar 19, 2008

Alvöru heimili

Loksins loksins komin með alvöru heimili.
Fór í dag að kaupa mér afmælisgjöfina mína frá pabba, nema hann veit ekki af því ennþá ;)
Fór út í byggingavöruverslu að kaupa mér snaga og allt tilheyrandi sem var borvél, bor, skrúfur, tappa og allt sem ég þurfti. Eða það hélt ég... Ég er búin að bora og setja tappana í en af því að ég er stelpa á ég ekki alvöru bitasett. Það er einhver asnalegur haus á þessum helvítis skrúfum þannig að ég þarf að fara aftur á morgun og kaupa mér alvöru bitasett.
Var ekki alveg að sjá fram á það að fá stelpurnar með sína jakka og látta þetta liggja út um alla íbúð. Ég fann mér geggjaða snaga en ég er alltaf jafn heppin, þeir voru ekki hannaðir til að nota á gipsveggi. Ég græddi heilan helling, kynntist næstum því öllum strákunum sem vinna í XL-byg en var örugglega ekkert vinsæl með mínar stelpu spurningar.
Kemur mynd af þessu á morgun vonandi.

Ég var samt búin að ákveða að vera í verkfalli þangað til að einhvern af stelpunum væri búin að blogga en þær eru greinilega í einhverju verkfalli líka.

5 ummæli:

Gunnsý sagði...

já ég er sko puttabrotin þegar kemur að bloggi. Er ekki að nenni því núna. En ég ætla að leggja inn beiðni fyrir Þórdísi. Og takk fyrir að kaupa snaga :*

Auður sagði...

Kæra systir mín, vildi bara benda þér á að þú veist töluvert meira um þessa hluti en flest allt kvenfólk. Nokkuð viss um að það vita ekki allir hvað bitasett er...
En sammála Gungu, takk fyrir að kaupa snaga

Nafnlaus sagði...

hey vúhú!

Heyrru, ertu komin með svefnsófann, ég er nebbninlega að koma til DK þann 27 febrúar og þarf að fara framhjá hjá þér, við gætum kannski kíkt út að borða og eitthvað:D

kv. NAFNLAUS

Disa Skvisa sagði...

Hmmm.... hvaða beiðni er verið að leggja inn fyrir mig?

Og með að ég bloggi - þá get ég það bara ekki, bloggið mitt vill ekki leyfa mér það. Er það ekki lögleg afsökun :P

annan sagði...

Alltaf game að fara út að borða!!
En verð ekki komin með sófann þá.
Ég get tekið frá gestaherbergi ef þú vilt eða við getum borðað snemma og þú rúllað niður eftir.