miðvikudagur, júní 11, 2008

Dagur 2 hjá lúðabarninu...

Jæja, núna er á að drepast í öllum líkamanum. Það tekur greinilega á að taka svona veltu.
En ég ákvað að vera rosalega sniðug og fara að kaupa mér sótthreinsandi og almennilegan plástur í apótekinu og nú svíður mér geðveikt, aumingja Anna, snökt snökt.

Ég er búin að láta hlæja þvílíkt af mér, þannig að ég ákvað að festa áverkana á "filmu" og sýna ykkur.

Þetta er hendin á mér, stokkbólgin og skinnlaus...


Svo er það að sjálfsögðu tölvugreyið mitt..



Ég veit ekki hvort þið sjáið það en það eru línur sem fara frá stóru klessunni alveg að litlu klessunum efst og neðst á skjánum. (Veit ekki einu sinni hvort þið sjáið litlu klessurnar...)

1 ummæli:

Disa Skvisa sagði...

úff litla mín.

Þetta er rosalegt. Vonandi líður þér betur þessa dagana.

En Já, maður er bara að fara af landi brott og fær ekkert að kveðja þig :S Hins vegar veit érg að við eigum eftir að hittast einhverstaðar á meginlandi evrópu í vetur ;) eða þú kíkir bara í heimsókn :P

Heyrumst!