sunnudagur, september 09, 2007

Á morgun

Á morgun kemst ég að því hvort ég komi heim eða ekki. Þarf að tala við Kim sem er með mér í hóp og fá leyfi. Ætla að skoða hvort það sé rétt hjá okkur Ingu að þetta sé vikan sem við skilum verkefninu okkar og ætti þess vegna að eiga helgarfrí. Geðveikt spennandi.
Það er samt geggjað að vita hversu mikið manns er saknað.
Atli, ég er búin að kaupa hlut fyrir Heiðar Snæ í staðinn fyrir fánann sem við eyðilögðum. Mikið nauðsynlegri hlutur til að hafa með á völlinn. Ég verð eiginlega að gefa honum það í eigin persónu er það ekki?
Alla vegana, læt ykkur vita á morgun hvað Kim segir.
Þangað til, bið að heilsa.

3 ummæli:

Disa Skvisa sagði...

Vonandi færðu að koma.. Bara fyrir þig, þetta er svo mikið fyrir þig :D

Heyrumst fljótlega :D

Auður sagði...

Á morgun er búinn...
Hvað sagði Kim??

Nafnlaus sagði...

HAha, hvað keyptiru?